Tenniskonan Serena Williams birti í gær myndband á Instagram-síðu sinni þar sem hún syngur ofursmellinn I Touch Myself eftir The Divinyls. Myndbandið birti hún til að vekja athygli á brjóstakrabbameini. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.
„Já, þetta kom mér út fyrir þægindarammann en ég vildi gera þetta vegna þess að þetta er málefni sem varðar allar konur, um allan heim,“ sagði Serena í færslu með myndbandinu.
Hún minnir konur á að skoða sjálfar sig reglulega og bendir á að krabbamein sem uppgötvast snemma getur bjargað lífum. „Ég vona að þetta hjálpi að minna konur á það,“ sagði hún.