Sergio Ramos, fyrirliði spænska landsliðsins, gefur út sitt eigið lag fyrir HM í Rússlandi. Lagið heitir „Otra Estrella en tu Corazon“ og má útleggja það sem „Önnur stjarna í hjarta þínu á íslensku“ að því er kemur fram í frétt RÚV.
Ramos, sem leikur einnig með Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni, hefur verið á milli tannanna á fólki undanfarnar vikur. Hann braut á Mohamed Salah, leikmanni Liverpool í úrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni, sem varð til þess að Salah fór meiddur af velli.
Sjá einnig: Hlustaðu á nýja HM lagið með Will Smith
Salah er í leikmannahópi Egypska landsliðsins á HM en óvíst er hvenær hann verður leikfær. Það er því ólíklegt að lagið slái í gegn hjá Egyptum og aðdáendum Liverpool.