Auglýsing

Sextán ára drengur handtekinn í miðborg Reykjavíkur: Miðaði skammbyssu að lögreglumanni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í dag sextán ára dreng í miðborg Reykjavíkur en sá miðaði skammbyssu að lögreglumanni. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að hann hafi verið handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem foreldrar hans komu og sóttu hann. Byssan reyndist vera eftirlíking af skammbyssu og er ekki meira fært um málið í dagbókina.

Tveir sitja í fangaklefa eftir verkefni dagsins en 67 mál voru færð inn í LÖKE-kerfi lögreglunnar. Neðangreind verkefni ná frá 05:00 í morgun og til 17:00 í dag.

Verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu:

Lögreglustöð 1 – Austurbær- Miðbær-Vesturbær-Seljarnarnes:

Tilkynnt um mann sem dettur á hopphjóli í hverfi 101 og fær skurð á höfuðið, maðurinn sjáanlega undir áhrifum áfengis, fluttur á bráðamóttöku til skoðunar.

Tilkynnt um mann sem neitar að yfirgefa stofnun í hverfi 108, honum vísað út

Ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 105 fyrir að tala í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað, afgreitt með sekt.

Ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 108 grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, við leit á ökumanni reyndist hann hafa meint fíkniefni í fórum sínum. Laus að lokinni blóðsýnatöku.

Ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 105 fyrir að tala í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað, afgreitt með sekt.

Einn maður handtekinn í hverfi 105 vegna gruns um fíkniefnamisferli, laus að lokinni skýrslutöku.

Ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 108 fyrir að tala í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað, afgreitt með sekt.

Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður- Garðabær- Álftanes:

Tilkynnt um mann sem dettur á hopphjóli í hverfi 220 og fær skurð á höfuðið, maðurinn sjáanlega undir áhrifum áfengis, fluttur á bráðamóttöku til skoðunar.

Lögreglustöð 3 – Kópavogur- Breiðholt:

Tilkynnt um líkamsárás í hverfi 200, minniháttar meiðsli, gerandi ókunnur.

Ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 200 grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, laus að lokinni blóðsýnatöku.

Lögreglustöð 4 – Grafarvogur- Mosfellsbær- Árbær:

Einn maður í annarlegu ástandi handtekinn í hverfi 112, hann vistaður í fangageymslu þar til af honum rennur.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing