Leikarinn Shia LaBeouf var handtekinn á sýningunni Cabaret í Studio 54 í New York í sumar. Hann tjáði sig loksins um málið í spjallþætti Jimmy Kimmel í vikunni.
Myndbandið og svakalega frásögn LaBeouf má sjá í myndbandinu fyrir neðan. Orsökin ku hafa verið óhófleg viskíneysla.
LaBeouf lét öllum illum látum á sýningunni og áreitti leikara og áhorfendur í salnum en í aðalhlutverkum í sýningunni eru Michelle Williams og Alan Cumming. Þá keðjureykti hann í salnum og var með almenn dólgslæti áður en lögreglan leiddi hann út í járnum. Hann var kærður fyrir ósiðlegt athæfi.