Auglýsing

Sigmar um andlát bræðranna: „Eins sorglegt og átakanlegt eins og það verður“

„Þetta er auðvitað ótrúlega sláandi og sorgleg sorgleg saga. Það var þannig að fyrir einhverjum vikum og þá skrifaði ég grein um það að það voru svona margir sem ég vissi til sem voru að deyja úr fíknisjúkdómnum og reyndar verið óvenjumikið um dauðsföll að undanförnu og Ásgeir Gíslason hafði þá samband við mig þann dag og vildi fá að hitta mig. Hann var þá reyndar út á sjó og við gátum ekki talað saman þá. Hann vildi endilega hitta mig þegar hann kæmi í land en sagði mér að hann hefði svolítið sláandi sögu að segja mér sem hann vildi fá að rekja fyrir mér undir fjögur augu,“ segir Sigmar Guðmundsson, fyrrum fjölmiðlamaður og núverandi Alþingismaður, sem er nýjasti viðmælandi Kiddu Svarfdal í þættinum „Fullorðins“ á hlaðvarpsveitunni Brotkast.

Sigmar steig fram á dögunum og skrifaði aðsenda grein á Vísi þar sem hann sagði frá tveimur bræðrum sem létust úr ofskömmtun lyfja með tólf klukkustunda millibili í ágúst síðastliðnum. Þeir bjuggu saman í íbúð í Kópavogi og höfðu báðir reynt að leita sér hjálpar en báðir átt erfitt með að ná sér á strik eftir meðferð. Frásögnin var sláandi og situr enn í fólki enda um virkilega sorglegan og átakanlegan atburð að ræða. Sigmar fer í viðtalinu yfir aðdraganda þess að hann skrifaði umrædda grein.

Lögregla kölluð í tvígang að íbúðinni

„Við hittumst núna á dögunum þegar hann var kominn í land. Ætli það séu ekki tvær vikur síðan eða eitthvað sem við hittumst og þá í raun og veru var hann að segja mér þessa frásögn og biðja mig um að koma henni á framfæri vegna þess að hann treysti sér ekki til þess sjálfur eða fjölskyldu hans og þá var það þannig að níunda ágúst síðastliðinn, þá dó sonur hans, Jón Kjartan í íbúð sinni í Kópavogi og öll ummerki bentu til þess að þetta hefði verið ofskömmtun vímuefna, lyfja, og eins og gerist þegar svona kemur upp er auðvitað hringt í lögreglu og sjúkralið og bráðaliða og það fara allir á vettvang og eru auðvitað þar í einhvern tíma að vinna. Sindri Geir, yngri bróðir Jóns Kjartans, sonur Ásgeirs, bjó líka í íbúðinni þarna þegar þetta var og hann vildi vera áfram í íbúðinni eftir að lögregla og bráðaliðar hurfu á vettvangi. Fjölskylda hans vildi nú frekar að hann færi eitthvað annað en hann vildi bara að vera þarna áfram og og það varð úr. Svo fór fjölskylduna undra það að það náðist ekki samband við Sindra Geir og þá var lögreglu aftur kölluð á vettvangi að þessu sama húsi í Kópavogi og þar kemur lögregla og bráðaliðarnir að Sindra Geir látnum líka,“ segir Sigmar og tekur fram að öll ummerki hafi bent til þess að þetta væri ekki viljaverk.

„Hann hafði líka dáið þá úr ofneyslu efna, lyfja. Öll ummerki bentu til þess að það væri þannig en ekki ekki viljaverk eða neitt þess háttar. Þannig að synir Ásgeirs tveir, sitthvorum megin við þrítugt, annar fæddur 1990 og hinn 1997 – þeir deyja með tólf klukkustunda millibili í sömu íbúð úr sama fíknisjúkdómum, á sama sólarhringnum, og þetta er auðvitað bara eins sorglegt og átakanlegt og það verður.“

„Ekki það að það skipti neinu máli en voru þetta læknalyf?“

„Já það er það sem menn menn halda að mér skilst að hafi verið reyndin og eins og eins og ég segi þá kannski hélt fólk fyrst að það gæti kannski þegar svona ofskömmtun lyfja er þá fara auðvitað vangaveltur um það hvort þetta sé viljandi eða ekki og það eru öll ummerki á vettvangi sem benda til þess að í hvorugu tilfellinu hafi þetta verið viljaverk og það svona á eftir að koma alveg endanlega út úr krufningu. En öll ummerki á vettvangi benda bara ofur einfaldlega í þessa átt og það eru allir sem hafa talað við fjölskylduna, að mér skilst um þetta, sannfærðir um að þetta hafi hafi verið málið.

Náðu sér ekki á strik eftir meðferð

Þeir höfðu báðir átt við vímuefnavanda að stríða. Jón Kjartan hafði farið í meðferð seint á síðasta ári og náði sér ekki alveg á strik. Það varð einhver smá bið á því að hann kæmist í áframhaldandi meðferð út af plássleysi og hann féll og náði sér ekki alveg á strik aftur.“

„Féll meðan hann var að bíða eftir að…“

„Ég veit svo sem ekki alveg nákvæmlega hvernig það var. Ég held að þetta sé þannig að það er auðvitað bara þannig í öllu meðferðarstarfi hjá öllum meðferðarstöðvunum er auðvitað verið að forgangsraða og allt þetta og og fjölskyldan er nú mjög um það að benda mjög skýrt á það að þau eru ekkert að kenna neinum um. Þetta er auðvitað ekki og allra síst auðvitað þeim sem eru að reyna að hjálpa fólki í þessum vanda. Það er ekki hægt að beina sökinni þangað, sökin er miklu frekar hjá okkur sem stýrum fjárveitingum í þennan málaflokk en heldur en til meðferðar.stöðvanna. Allavega að hann náði sér ekki á strik og deyr svo þarna í ágúst og Sindri Geir hafði margoft reynt að ná sér í bata líka. Hann átti tvö mjög ung börn, mjög ung börn, sko og hérna þau auðvitað þá alast upp við að fá ekkert að hitta pabba sinn framar og hann var búinn að gera mjög mikið til að reyna að vera edrú fyrir fjölskylduna sína og börnin sín veit ég. Alveg að ítrekað að reyna. En þetta er bara svo flókin og þungur sjúkdómur. Getur verið svo erfitt að ná sér á strik og stundum koma svona tímabil hjá fólki þar sem allt er einhvern veginn læst og svo allt í einu kannski ná menn batanum. En því miður var það þannig með með hann – hann náði því ekki.“

„Hann var ekki orðin þrítugur?“

„Hann var tæplega þrítugur hann Sindri Geir og Jón Kjartan var rúmlega þrítugur þannig að þetta voru auðvitað bara tveir ungir menn sem áttu framtíðina fyrir sér. Áttu allt gott skilið eins og við öll. Góðir drengir, elskaðir af fjölskyldunni sinni en þeir voru bara fastir í viðjum fíknar eins og eins og gerist og og því miður er það bara staðreyndin að fólk deyr því miður í stórum stíl á Íslandi úr þessum sjúkdómi þó það gangi svolítið hægt að opna augu fólks fyrir því og Ásgeir Gíslason, pabbi þeirra og reyndar systur þeirra líka, finnst bara ótrúlega mikið þó að þau treysti sér ekki enn þá til þess að vera í viðtölum eða segja frá þá finnst þeim mikilvægt að þetta sé rætt. Þeim finnst það gríðarlega mikilvægt að fólk viti að þessi sjúkdómur, fíknisjúkdómurinn, hann er að leggja af velli ungt fólk. Gott fólk sem var bara að reyna að lifa eðlilegu lífi en með þessa veiki í sér og þau vilja bara samfélagið ræði þetta. Þetta er bara það sem er að gerast. Hvað ætlum við að gera í því? Hvernig ætlum við að bregðast við? Af hverju erum við svona tilbúin og fljót á vettvang þegar þarf að, sem er auðvitað bara frábært, þegar þarf að bjarga byggð og reisa varnargarða? Af hverju reisum við ekki varnargarða utan um þetta fólk?“

Til þess að hlusta og horfa á þetta átakanlega viðtal í fullri lengd verður þú að vera með áskrift að hlaðvarpsveitunni Brotkast sem býður upp á fjölda áhugaverðra hlaðvarpa. Þú getur nælt þér í áskrift og skoðað betur hvað Brotkast hefur upp á að bjóða með því að smella hér. Fyrir neðan birtum við, með góðfúslegu leyfi, smá myndskeið úr frásögn Sigmars.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing