Auglýsing

Sigmundur Davíð um uppþvottaburstann: Lýsandi fyrir móðgunarmenninguna

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra Íslands hefur bæst í hóp þeirra sem tjá sig um uppþvottaburstamálið. Sigmundur segist hafa fulla samúð með Tyrknesku landsliðsmönnunum vegna biðarinnar á Keflavíkurflugvelli, enda sé flugvallarbið ekki skemmtileg. Hann segir að æsingurinn sem skapaðist í kringum uppþvottaburstann sé hins vegar lýsandi dæmi um hvernig atburðarrás geti farið úr böndunum nú til dags.

,,Ég hef fulla samúð með tyrknesku landsliðsmönnunum vegna biðarinnar á Kaflavíkurflugvelli. Flugvallabið er ekki skemmtileg þótt eflaust hafi þetta allt verið í samræmi við reglur og Íslendingar lendi í þessu ekki síður en aðrir,“ segir í Facebook færslu Sigmundar

,,Þvottaburstaatvikið er hins vegar áhugaverðara því það varð að lýsandi dæmi um hvernig atburðarás getur farið úr böndunum nú til dags. Nú þegar ótrúlega margir eru í stöðugri leit að tækifærum til að móðgast. Hver og einn í viðbragðsstöðu að móðgast fyrir hönd hinna ýmsu hópa (hvort sem viðkomandi telur sig tilheyra hópnum eða ekki) og jafnvel fyrir hönd heilu þjóðanna,“ segir Sigmundur.

Sjá einnig: Bjarni Ben tjáir sig um uppþvottaburstamálið: „Dálítið fyndið en ekki móðgun“

Facebook færsla Sigmundar í heild sinni:

Hvað myndi Klopp gera?

Ég hef fulla samúð með tyrknesku landsliðsmönnunum vegna biðarinnar á Kaflavíkurflugvelli. Flugvallabið er ekki skemmtileg þótt eflaust hafi þetta allt verið í samræmi við reglur og Íslendingar lendi í þessu ekki síður en aðrir.

Þvottaburstaatvikið er hins vegar áhugaverðara því það varð að lýsandi dæmi um hvernig atburðarás getur farið úr böndunum nú til dags. Nú þegar ótrúlega margir eru í stöðugri leit að tækifærum til að móðgast. Hver og einn í viðbragðsstöðu að móðgast fyrir hönd hinna ýmsu hópa (hvort sem viðkomandi telur sig tilheyra hópnum eða ekki) og jafnvel fyrir hönd heilu þjóðanna.

Samfélagsmiðlar veita hinum sömu einstakt tækifæri til að sinna þessari tómstundaiðju í samfélagi við herskara fólks sem deilir sama áhugamáli.

Þrátt fyrir að allt sæist skýrt á myndbandinu úr Leifsstöð var uppþvottaburstinn allt í einu orðinn salernisbursti og búið að túlka hvað burstamanninum hefði gengið til, hvað hann hefði verið að hugsa og hver hann væri.

Ýmsir viðkunnanlegir og alsaklausir íslenskir íþróttafréttamenn fengu fyrir vikið yfir sig skæðadrífur á samfélagsmiðlum.

Því hefur verið haldið fram að slík móðgunargirni sé á einhvern hátt einkennandi fyrir Tyrki. Hvað sem því líður eru þessi viðbrögð miklu frekar einkennandi fyrir móðgunarmenninguna sem hefur heltekið Vesturlönd og aðrar þjóðir á undanförnum árum.

Nýjustu fréttir benda til að maðurinn með uppþvottaburstann hafi verið belgískur ferðamaður. Hvað Belgi var að gera með þvottabursta í Leifsstöð er hins vegar enn óleyst ráðgáta.

E.t.v. keypti hann burstann til að þvo plastdiskana og Primus-pönnuna sína í næsta læk við tjaldið sem hann setti alltaf upp rétt við þjóðveginn eða í vöskunum sem notaðir eru sem fótabað í Landmannalaugum.

Hann hefur líklega verið að létta á bakpokanum sínum fyrir brottför og hugleiða hvort hann ætti að bera heim burstann sem hann borgaði ígildi meira en 10 evra fyrir eða henda honum.

Þar sem hann hélt á burstanum og velti vöngum kom ókunnugur maður gangandi umkringdur fréttamönnum sem ráku upp í hann hljóðnema.
Allt í einu sá Belginn verðugt tækifæri til að nota tíu evru þvottaburstann sinn í síðasta sikipti.

Þetta er bara tilgáta og auðvitað var atferlið óviðeigandi og hugsanlega dálítið barnalegt en samt var þetta alveg þokkalegur fimm aura brandari í samhengi hlutanna. Ekkert meira en það og gefur varla tilefni til morðhótana.

Þegar svona lagað kemur upp er ágætt að spyrja sig spurningarinnar „hvað myndi Klopp gera?”.

Ef Jürgen Klopp lenti í fyrirsáti sjónvarpsmanna eftir þreytandi bið á flugvelli og í hópnum væri maður sem reyndi að taka viðtal við hann með þvottabursta ímynda ég mér að Klopp myndi fyrst og fremst einbeita sér að því að tala í þvottaburstann, hrósa viðkomandi fyrir tækjabúnaðinn og vera skemmtilegur að vanda.

Það væri gott ef fleiri myndu „taka Klopp á hlutina”.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing