Önnur sería af Ófærð heufr líkt og sú fyrri heltekið íslenskt samfélag. Fimmti þáttur var sýndur á RÚV í gær og það er heldur betur spenna farin að færast í leikinn.
Til þess að hjálpa áhorfendum að skilja þættina betur birti Sigurjón Kjartansson, einn af handritshöfundum þáttanna, mynd á Twitter sem útskyrir tengsl persónanna í þáttunum sem hafa verið að flækjast fyrir fólki.
Sjá einnig: Twitter fylgdist með frumsýningu á Ófærð 2: „Eins og langur þáttur af bílastæðaavörðunum“
Margir virðast þakklátir Sigurjóni en myndin hefur fengið yfir 750 hjörtu á Twitter og hafa margir þakkað honum fyrir. Einn notandi sagði þá að hann ætti skilið fálkaorðuna fyrir myndbirtinguna.
Bílastæðaverðir?
Gjöriði svo vel! #ofaerð pic.twitter.com/RBsr5a1d3z
— Sigurjón Kjartansson (@Skjartansson) January 20, 2019