Hamborgarafabrikkan hefur sett saman borgara til heiðurs Vilborgar Örnu Gissurardóttur pólfara. Simmi og Jói, eigendur Hamborgarafabrikkunar sættu gagnrýni fyrir að líta framhjá konum þegar kom að nafngiftum á hamborgurum staðarins og var málið meðal annars tekið fyrir í Áramótaskaupinu.
Jói var gríðarlega ánægður með brandarann í Skaupinu en segir vinnu við Vilborgarann hafa hafist vel fyrir áramót. „Við vorum farnir af stað löngu fyrir Skaupið með samstarfið við Vilborgu og tímasetningin á atriðinu í Skaupinu því nokkuð kómísk,“ segir hann í samtali við Nútímann.
Mér fannst atriðið æðislegt og náði að ramma umræðuna vel inn.
Hamborgarafabrikkan hefur verið dugleg við að heiðra karla á matseðli sínum og fjarvera kvenna komst í umræðuna síðasta sumar. Jóhannes segir umræðuna eiga fyllilega rétt á sér. „Okkur þykir gott mál að fólk hafi skoðanir á Fabrikkunni og það er sjálfsagt mál að bregðast við,“ segir Jóhannes.
Hann segir öruggt að fleiri réttir verði kenndir við konur á staðnum á komandi misserum. „Þessi nöfn ráðast svolítð á tíðarandanum og það er öruggt mál að við munum nefna fleiri rétti eftir konum.“