Stikla fyrir nýja kvikmynd um Freddie Mercury og hljómsveitina Queen, var frumsýnd í dag. Myndin heitir Bohemian Rhapsody eftir einu frægasta lagi hljómsveitarinnar vinsælu.
Það er leikarinn Rami Malek sem fer með hlutverk Mercury en hann líkist söngvaranum knáa ótrúlega.