Auglýsing

Sjáðu gjörsamlega sturlaða veltu frá torfærunni um helgina

Seinna bikarmótið í torfæru fór fram í Stangarhyl um helgina og var mikið um dýrðir en það var að lokum Andri Már sem endaði sem bikarmeistari.

Nútíminn fékk sent myndband af hreint út sagt brjálaðri veltu sem átti sér stað í keppninni en það var Þór Þormar Pálsson á THOR (KFC) bílnum sem lenti í þessari mögnuðu veltu.

Nútíminn ætlar ekkert að fjölyrða um myndbandið enda er sjón sögu ríkari og vonum við að það sé í lagi með bæði bíl og ökumann!

Myndbandið er hægt að sjá í spilaranum hér fyrir neðan en það tók Kristján Finnur Sæmundsson.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing