Karólína Jóhannsdóttir í Menntaskólanum í Reykjavík sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna í kvöld. Úrslitin fóru fram í myndveri Sagafilm á Laugavegi 176 og voru í beinni útsendingu á RÚV.
Karólína flutti lagið Go Slow með Haim. Kristín Björg Björnsdóttir, Melkorka Davíðsdóttir Pitt og Guðrún Ýr Eyfjörð sungu bakraddir.
Myndband af flutningnum má sjá hér fyrir neðan.