Auglýsing

Sjaldgæfur og jafnvel hættulegur úrkomuatburður næstu daga, meira en 100 mm á sólarhring

Í nótt, á morgun og á fimmtudag er spáð mikilli rigningu, meira en 100 mm á sólarhring, á svæðunum frá austanverðum Vatnajökli í austri, á öllu Suðaustu- og Suðurlandi og norður með Vesturlandi að Ísafjarðardjúpi.

Varað er við þessu á vef Veðurstofu Íslands.

Í þéttbýli, líkt og á höfuðborgarsvæðinu, mun mikið reyna á frárennslismannvirki og því mikilvægt að þau virki sem skyldi. Ráðlagt er að hreinsa vel frá niðurföllum og grípa til annarra aðgerða sem þurfa þykir.

Ásamt úrkomunni er búist við miklu afrennsli af jöklum. Því má búast við miklum vatnavöxtum í kjölfarið og þar sem mikið hefur rignt undanfarið er vatnsstaða víða há.

Flóðahætta getur því skapast mjög víða á svæðinu strax í nótt t.d. á vatnasviði Hvítár í Árnessýslum, við Ölfusá, og við Norðurá og Hvítá í Borgarfirði. Viðbúið er að mikið vaxi í ám og lækjum og er fólki eindregið ráðlagt frá því að reyna að fara yfir óbrúaðar ár og læki. Jafnframt má búast við aukinni hættu á  skriðuföllum á þessum slóðum.

Langvarandi úrkomuatburðir sem þessir eru mjög sjaldgæfir og aðstæður og afleiðingar því ókunnar og jafnvel hættulegar.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing