Auglýsing

Sjálfstæðisflokkurinn sigraði „Alhringiskosningar“ Dunkin’ Donuts, mörgum var mikið niðri fyrir

Sjálfstæðisflokkurinn bar sigur úr bítum í „Alhringiskosningum“ Dunkin’ Donuts en keppnin hefur verið í gangi síðustu daga.

Starfsmenn kaffihúsanna útbjuggu súkkulaðifyllta hringi með merkjum flokkanna sem eru í framboði í Alþingiskosningunum.

Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjóra Dunkin’ Donuts á Íslandi, Sigurði Karlssyni, virtust viðskiptavinirnir mjög ákveðnir þegar þeir keyptu hring merktan þeim flokki sem þeir ætla að kjósa. Var sumum mikið niðri fyrir þegar tjáðar voru skoðanir á stjórnmálunum.

Niðurstöðurnar má sjá á myndinni sem fylgir fréttinni. Það er spurning hvort að þessi óvísindalega rannsókn, ef svo má að orði komast, gefi einhverja mynd af niðurstöðu Alþingiskosninganna. Sjáum hvað setur.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing