Sjö ára gömul auglýsing frá Vodafone sem Nútímanum áskotnaðist sýnir að rapparinn Króli hefur alltaf verið fáránlega nettur. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.
Króli sló í gegn á dögunum ásamt Jóa P félaga sínum með ofursmellinum B.O.B.A og gáfu þeir í kjölfarið út plötuna GerviGlingur. Hann var 11 ára gamall þegar auglýsingin kom út og það mætti segja að hún sýni hvað beið hans í framtíðinni.
Sjá einnig: Lögin af plötu Jóa P og Króla raða sér í átta efstu sætin á Spotify: „Vissi ekki að þetta væri hægt!“
Kristinn Óli Haraldsson eða Króli eins og hann kallar sig sagði í samtali við Nútímann á dögunum að gríðarleg vinna hafi farið í gerð plötunnar GerviGlingur. „Okkur þykir vænt um þessa plötu. Það fór massívur tími og massív orka í að gera hana,“ sagði hann.