Sjónvarpsþáttaröðin Stella Blómkvist hefur fengið hæstu endurgreiðsluna vegna framleiðslukostnaðar á þessu ári. Endurgreiðslur úr Kvikmyndasjóði Íslands vegna framleiðslukostnaðar á þessu ári nema 369.530.601 krónum. Stella Blómkvist í framleiðslu Sagafilm fékk 112 milljónir króna. Þetta kemur fram í yfirliti sem birtist á vef Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Sjóðurinn endurgreiðir framleiðendum kvikmynda eða sjónvarpsefnis á Íslandi 25% framleiðslukostnaðar sem til fellur hér á landi. Hlutfallið var hækkað úr 20 prósentum fyrir tveimur árum til að auka samkeppnishæfni íslenskrar kvikmyndagerðar.
Framleiðslukostnaðurinn við sjónvarpsþáttaröðina Stellu Blómkvist var því um 448 milljónir króna. Þættirnir voru sýndir í sjónvarpi Símans.
Sjá einnig: Myndband: Rapparinn Joey Christ leikur alræmdan undirheimahund í Stellu Blómkvist
Næst á eftir Stellu Blómkvist í röðinni er kvikmyndin Ég man þig sem gerð var eftir samnefndri bók Yrsu Sigurðardóttur, með tæplega 60 milljónir króna, í framleiðslu Zik Zak. Þar á eftir sjónvarpsþættirnir Biggest looser sem framleiddir voru af Sagafilm og fengu um 41 milljón króna endurgreidda.
Kvikmyndin Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson fékk 26 milljónir og Undir trénu eftir Hafstein Gunnar Sigurðarson tæpar 19 milljónir.
Endurgreiðslur vegna verkefna sem lauk árið 2017 námu samtals um 961 milljón króna. Þá fékk framleiðslufyrirtækið Truenorth hæstu endurgreiðsluna vegna erlendu kvikmyndarinnar Justice League eða rúmar 150 milljónir króna.