Skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Fyre Festival þurfa að borga tveimur gestum samtals fimm milljónir dala, eða rúmlega 500 milljónir íslenskra króna, í skaðabætur. Hátíðin lofaði lúxus og allsnægtum á einkaeyjunni Great Exuma í Karíbahafi en reyndist vera algjört klúður.
Seth Crossno og Mark Thompson borguðu 13 þúsund Bandaríkjadali, eða tæplega eina og hálfa milljón króna, fyrir VIP-miða á tónlistarhátíðina. Áhrifavaldar á samfélagsmiðlum og frægt fólk auglýsti hátíðina þannig að mikið virtist í hana spunnið en þegar á staðinn var komið varð gestum ljóst að ekki var allt sem sýndist.
Sjá einnig: Héldu að þau myndu njóta lífsins á Fyre Festival, sváfu með rennandi blaut teppi í lekum tjöldum
Í stað lúxusaðstöðu blasti hálfklárað tónleikasvæðið við gestunum en einhverjir þeirra líktu aðstöðunni á svæðinu við flóttamannabúðir. Þegar fólkið ætlaði að forða sér burt af eyjunni gekk það erfiðlega og margir urðu strandaglópar á flugvellinum.
This sums up Fyre Festival. #fyre #fyrefestival #fyrefest pic.twitter.com/x4xcFBL8Yg
— William Needham Finley IV (@WNFIV) April 28, 2017
Þeir Seth og Mark kærðu skipuleggjendur hátíðarinnar í maí á síðasta ári. Seth sagði skipuleggjendur hátíðarinnar ekki bara vera að svindla á sér heldur hafi þetta verið fjársvik sem gekk alltof langt.
Billy McFarland, skipuleggjandi hátíðarinnar situr nú í fangelsi en hann lýsti sig sekan um fjársvik fyrr á þessu ári. Hann var einnig sakaður um að selja falska miða aðra viðburði svo sem á tónlistarhátíðina Coachella, tískusýningu Victoria’s Secret og góðgerðarviðburðinn Met Gala.