Dómsmálaráðuneytið hyggst skoða aðgerðir eða aðgerðaleysi vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga í kjölfar beiðni fjölskyldu Lúðvíks Péturssonar, sem féll í sprungu í Grindavík er hann var þar við störf í janúar. Þetta kemur fram á fréttavef RÚV. Þar segir að skoðunin mun taka til tímabilsins frá því að óvissustigi var lýst yfir í Grindavík 25. október í fyrra og þar til starfshópurinn tók til starfa.
Rætt er við Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, í frétt RÚV en þar segir hann fjölskylduna þakkláta fyrir að óháð rannsókn fari nú fram „…þó að fjölskyldan hafi vonað að rannsóknin myndi beinast sérstaklega að slysinu.“
„Við höfðum að einhverju leyti væntingar um það að það yrði kannski þrengri fókus. Að rannsóknin myndi beinast eingöngu að atburðarásinni fyrir og eftir slys og slysinu sjálfu. Á sama tíma trúum við því og treystum að slysið verði burðarás í rannsókninni, enda hefur það komið fram mjög víða að þetta slys hafi verið ákveðinn vendipunktur í þeim hamförum sem voru og eru í gangi í Grindavík,“ segir Elías í viðtali við RÚV og undirstrikar að fjölskyldan sé ekki að leita að sökudólgum þó það komi eflaust í ljós að einhverjar ákvarðanir í aðdraganda slyssins hafi verið rangar, eða að betra hefði verið að taka einhverjar ákvarðanir.
„Það er grundvallarhugsunin að það verður að gera allt sem mögulegt er til að minnka líkurnar og helst koma í veg fyrir það að svona hlutir komi fyrir aftur og að menn eins og Lúlli bróðir verði settur í þá aðstöðu sem hann var settur í.“