Auglýsing

Smáskjálftavirkni heldur áfram að aukast: Það fer að draga til tíðina í Svartsengi

Fjöldi jarðskjálfta sem mælist á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að aukast. Allt eru þetta smáskjálftar undir M2,0 að stærð og meiri hluti þeirra undir M1,0 að stærð. Í þessari viku, frá því á mánudaginn 5. ágúst, hafa hátt í þrjú hundruð jarðskjálftar mælst á svæðinu. Fjöldi skjálfta hefur farið vaxandi undanfarnar vikur.

Aflögunargögn og líkanreikningar sýna að landris og kvikusöfnun undir Svartsengi er svipuð og síðustu daga. Þessi gögn sýna merki um það að kvikuþrýstingur sé áfram að aukast og er þetta svipuð þróun eins og vikurnar fyrir undanfarin kvikuhlaup og eldgos.

Hér er yfirlit yfir jarðskjálftavirkni í kringum Sundhnúksgígaröðina byggt á yfirförnum jarðskjálftum frá 3. júní til 9. ágúst. Vinstra megin má sjá staðsetningu jarðskjálftanna á korti, uppi hægra megin er línurit sem sýnir stærð skjálftanna og niðri hægra megin er súlurit sem sýnir fjölda jarðskjálfta á viku. Súluritið sýnir vaxandi skjálftavirkni síðustu vikur samanborið við litla skjálftavirkni á meðan síðasta gosi stóð frá 29. Maí til 22. Júní.

Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt frá því sem áður var og gildir til 13. ágúst að öllu óbreyttu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing