Skemmtikrafturinn og útvarpsmaðurinn Sólmundur Hólm hélt að Ágústa Eva væri að standa upp til að dansa með Reykjavíkurdætrum í þætti Gísla Marteins í gærkvöldi. Ágústa Eva gekk út úr þættinum eins og Nútíminn greindi frá í gærkvöldi en hún var afar ósátt við framgöngu Reykjavíkurdætra.
Sjáðu myndbandið af því þegar Ágústa yfirgefur myndverið hér fyrir ofan.
„[Ég] velti fyrir mér að gera það sama,“ segir Sóli á Twitter og undirstrikar að hann sé ekki að grínast.
Ég hélt fyrst að Ágústa Eva væri að standa upp til að dansa með @RVKdaetur og velti fyrir mér að gera það sama. No joke. #vikan
— Sóli Hólm (@SoliHolm) February 27, 2016
Það vakti mikla athygli í gærkvöldi þegar Ágústa Eva yfirgaf þáttinn í beinni útsendingu. Nútíminn hafði í kjölfarið samband við Ágústu Evu sem sagði að hún og Eivör Pálsdóttir, sem var einnig gestur í þættinum, hafi ekki verið ánægðar með framgöngu Reykjavíkurdætra í þættinum.
„Ég samþykkti ekki að taka þátt í svona gjörningi. Þetta var bara massaóvirðing við alla — í setti og líka þau sem sátu heima,“ sagði hún og velti fyrir sér hvort hópur af körlum hefði komist upp með það sama.
Hvað ef hópur manna hefði troðist inn í settið með gervisköp, skakandi sér á viðmælendum og stjórnandanum, berir að neðan, segjandi fólki að totta á sér kónginn. Fáránlegt að það hafi ekki verið tekið úr sambandi og settar auglýsingar.
Fólk skiptist í fylkingar á samfélagsmiðlum en stór hópur klórar sér í höfðinu yfir látunum og tekur enga sérstaka afstöðu í málinu. Fáum þetta á hreint.