Sóli Hólm, einn af stjórnendum Virkra morgna á Rás 2, er frábær eftirherma. Það vitum við og það fengum við til dæmis að sjá í áramótaskaupinu þegar hann lék Gylfa Ægisson.
Virkir morgnar hófust í gær á því að Sóli kynnti aðra eftirhermu til sögunnar: Guðmund Pálsson, Baggalút og einn af stjórnendum Síðdegisútvarpsins.
Hlustaðu á byrjunina á þættinum hér fyrir ofan. Eftirherman er svo góð að Nútíminn hefur heimildir fyrir því að sonur Guðmundar hafi ruglast og talið að pabbi sinn væri í útvarpinu.