Samfélagsmiðlastjarnan Sólrún Diego var gæsuð um helgina. Vinkonur hennar komu henni á óvart og héldu glæsilegt gæsapartí á snekkju í Reykjavík.
Sólrún mun giftast forritaranum Fransi Veigari Garðarssyni í júlí. Gæsun hennar innhélt skemmtun á borð við rallíbílaakstur og víndrykkju. Hreimur Örn Heimisson úr Landi og sonum mætti svo á snekkjuna og tók lagið fyrir Sólrúnu.