Samfélagsmiðlastjarnan Sólrún Diego greindi frá því á Instagram síðu sinni að hún hyggðist ekki leyfa myndatökur í brúðkaupi sínu. Sólrún og unnusti hennar Frans Garðarsson ætla að gifta sig í sumar.
Sólrún hefur verið dugleg að sína frá undirbúningnum fyrir brúðkaupið á samfélagsmiðlum en hún fór meðal annars með vinkonum sínum til London í apríl til að máta brúðarkjóla.
Sólrún bauð upp á Spurt og svarað á Instagram síðu sinni þar sem hún svaraði spurningum fylgjenda. Hún greindi frá því að hún myndi væntanlega setja myndir úr brúðkaupinu inn á sína eigin miðla daginn eftir en að annars yrðu myndatökur bannaðar. Þá vildi hún ekki gefa upp hvar brúðkaupið verður.
Skjáskot/Instagram