Corey Taylor, söngvari þungarokkhljómsveitarinnar Slipknot, biður Kanye West um að hætta að kalla sig mestu rokkstjörnu heims í myndbandi sem birtist á Youtube síðu Music Choice. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
Sjá einnig: Kanye West tók eigin útgáfu af Bohemian Rhapsody á Glastonbury
Rapparinn sagði síðast við áhorfendur á tónlistarhátíðinni Glastonbury að þeir væru að fylgjast með „mestu núlifandi rokkstjörnu á plánetunni.“
Taylor er ósammála og segir: „Kanye, þú ert ekki – ekki – mesta núlifandi rokkstjarna allra tíma.“
Sú staðreynd að þú sért að segja fólki það segir meira en mörg orð. Þú minnir mig á gaurinn sem montar sig að hafa sofið hjá fullt af stelpum. Þeir fá aldrei jafn mikið og þeir segja. Hættu þessu. Hættu.
Skilaboðin má sjá hér fyrir neðan.