Starfsmaðurinn sem úthlutaði liðsmönnum Hatara verstu sætin í flugvélinni á leið frá Tel Aviv hefur verið rekinn. Sniðgöngu á flugfélaginu El Al hefur verið hótað í kjölfarið. Þetta kemur fram á vef Times of Israel.
Sjá einnig: Hatarar fengu „verstu“ sætin í flugvélinni frá Ísrael vegna mótmælanna: „Svölu krakkarnir sitja aftast“
Flugvallarstarfsmenn á flugvellinum í Tel Aviv montuðu sig af því á netinu að hafa sett meðlimi Hatara í verstu sætin þegar hópurinn flaug frá Tel Aviv til London.
Samkvæmt Times of Israel eru andófsmenn Hatara ekki sáttir með það að starfsmaðurinn hafi verið rekinn og hóta því að sniðganga flugfélagið.