Auglýsing

Stark-systurnar fengu sér eins húðflúr: „Áður en einhver myrðir okkur“

Sophie Turner, sem fer með hlutverk Sönsu Stark í þáttunum Game of Thrones, sýndi tattúið sitt á rauða dreglinum á Emmy-hátíðinni í gærkvöldi. Þær Maisie Williams, sem leikur Aryu Stark í sömu þáttaröð, fengu sér nýlega eins húðflúr.

Þær létu flúra dagsetningun 07.08.09 á sig og er það vísun í daginn sem þær komust að þær hefðu fengið hlutverk í þáttaröðinni.

Sjá einnig: Aðeins tvær þáttaraðir eftir af Game of Thrones

Þegar Turner var spurð af hverju þær hefði orðið til þess að þær hefðu fengið sér tattúin núna hló hún og vísaði til þess að aðalleikarar þáttanna eigi það til að deyja.

„Við vitum ekki hvort við munum hafa það af, svo við Maisie ákváðum að fá okkur svona áður en einhver myrðir okkur,“ sagði hún og hló.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing