Leikarinn Stefán Karl Stefánsson er látinn eftir tveggja ára baráttu við krabbamein. Það var Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, eiginkona Stefáns sem greindi frá sorgartíðindunum á Facebook síðu sinni.
Stefán Karl greindist með krabbamein í brishöfði haustið 2016. Stefán var 43 ára gamall en hann fæddist 10. júlí árið 1975. Stefán var einn ástsælasti leikari íslensku þjóðarinnar og var hvað þekktastur fyrir leik sinn sem Glanni Glæpur í Latabæ.
Stefán lætur eftir sig eiginkonu og fjögur börn.