Leikarinn Stefán Karl Stefánsson hefur verið útskrifaður af Landspítalanum. Þar hefur hann dvalið síðustu daga vegna aðgerðar sem hann gekkst undir vegna krabbameis i í brisi.
Stefán Karl hefur ekki setið auðum höndum á spítalanum. Hann birti meðal annars mynd af sér á Imgur og svaraði spurningum aðdáenda á Reddit.
Sjá einnig: Stefán Karl jafnar sig ótrúlega hratt, segir fjölskylduna stadda í harkalegu umferðarslysi
Í fyrradag birti Stefán Karl færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann greindi frá því að hann fengi að fara heim í leyfi þann daginn.
„Það þýðir að ég má fara heim og máta mig við heimilislífið í nokkra klukkutíma en fer svo aftur á spítalann upp úr kvöldmat. Ég er ennþá á miklum lyfjum og má almennt ekki gera neitt, t.d. er ég með uppá skrifað að ég má ekki stunda nein heimilisstörf í 8 vikur (mæli með þessu bara fyrir það). Ekki lyfta neinu þyngra en 3 kílóum (lofta því hvort sem er ekki) og ekki fara út úr húsinu sem er fínt enda mannafælinn með eindemum. Þannig að, þetta er allt að koma, en eitt skref í einu,“ skrifar hann.