Steinarr Lár eigandi KúKú Campers mætti á þyrlu í fjölmenna veislu sem hann hélt í Bíó Paradís í gærkvöldi. Sjáðu myndir úr veislunni hér fyrir neðan.
KúKú Campers hefur farið óhefðbundnar leiðir í markaðssetningu og var engin breyting þar á í gærkvöldi þegar hann frumsýndi nýtt kynningarmyndband sem á eftir að vekja talsverða athygli, að sögn viðstaddra sem grétu úr hlátri yfir sýningunni. Við frumsýnum myndbandið á Nútímanum á sunnudaginn.
Steinarr bauð með sér helstu samstarfsaðilum sínum í útsýnisflug yfir borgina með stuttu kampavínsstoppi á toppi Esjunnar fyrir frumsýninguna á myndbandinu.
Myndbandið sjálft var unnið og framleitt af kvikmyndagerðarmanninum Árna Sveinssyni sem er þekktastur fyrir myndir sínar Óla Prik um Ólaf Stefánsson og Með Hangandi hendi sem fjallaði um Ragga Bjarnason.