Hraðfréttakonan Steiney Skúladóttir frelsaði geirvörtuna í Hraðfréttunum í Sjónvarpinu í gær. #FreeTheNipple átakið hefur vakið gríðarlega athygli í vikunni og hafa þúsundir kvenna tekið þátt með einum eða öðrum hætti.
Sjá einnig: Fjórar vinalegar ábendingar við pistil Hlyns Kristins á Menn.is
Steiney sér um menningu og listir í Hraðfréttum og kom eflaust einhverjum áhorfendum í opna skjöldu þegar hún birtist ber að ofan á skjánum. Uppátækið vakti að sjálfsögðu mikla athygli og á Twitter, þar sem byltingin hófst í vikunni, lýsti fólk yfir hrifningu sinni.
Sjá einnig: Örskýring um brjóstabyltinguna
Eitt verðskuldað S/O á nettustu píu heims og ástkæra vinkonu @steiney_skula fyrir hraðfréttaþátt kvöldsins. MHM! NAILED IT. #FreeTheNipple
— Þórdís Björk (@tordisbjork) March 28, 2015
#FreeTheNipple tekið alla leið í Hraðfréttum! Vel gert @steiney_skula og verulega unexpected hjá Rúv
— Ragnheiður Kristín (@heidafinnboga) March 27, 2015
JEEEEESS @steiney_skula #hraðfréttir
— Heiður Anna (@heiduranna) March 27, 2015
Steiney ber a að ofan í Hraðfréttum kvöldsins, vel gert!! #hradfrettir #FreeTheNipple
— Pétur Elvar (@PeturElvar) March 27, 2015
Smelltu hér til að horfa á þáttinn. Frelsun geirvörtunnar hefst þegar sex mínútur og 49 sekúndur eru liðnar af þættinum.