Bindið sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var með um hálsinn á Bessastöðum á mánudag hefur vakið verðskuldaða athygli.
Bindið er skreytt með teiknuðum myndum af fílum og í viðtali við Fréttablaðið í dag sagði hann að það væri í sérstöku uppáhaldi: „Þetta bindi fékk ég í gjöf frá Dorrit.“ Hér má sjá Ólaf lesa upp tilkynningu sína á mánudag.
Ég skora á @gollmundur að gefa okkur hi-res inn–zoomaða mynd af bindi Ólafs. Þjóðin á það skilið eftir tíðindin! pic.twitter.com/0XrAbmu9Rv
— Haukur Viðar (@hvalfredsson) April 18, 2016
Og hér má sjá nærmynd ljósmyndarans Golla af bindinu.
@hvalfredsson pic.twitter.com/3aev9g0ULm
— Golli-Kjartan Þorbj. (@gollmundur) April 18, 2016
Bindið er til sölu í versluninni Roderick Charles í London og ef þú vilt stela stíl Ólafs Ragnars geturðu keypt það hér. Bindið er á sérstöku tilboði um þessar mundir, kostaði 79 pund en kostar í dag 59 pund, eða rúmlega 10 þúsund krónur.
Bindið er úr 100% silki og framleitt í Bretlandi.