Stór hluti undirskrifta meðmælenda Íslensku þjóðfylkingarinnar virtist vera með sömu rithönd. Flokkurinn hefur dregið alla framboðslista fyrir kosningarnar 28. október til baka. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Stjórnmálaflokkar sem bjóða fram í kosningunum þurfa að skila inn ákveðnu magni af undirskriftum frá meðmælendum í kjördæmunum sem boðið er fram í. Í frétt RÚV að margir á meðmælalistum Íslensku þjóðfylkingarinnar kannist ekki við að hafa skrifað undir fyrir flokkinn.
Í frétt RÚV er rætt við fólk úr kjörstjórnum þriggja kjördæma sem allt hefur sömu sögu að segja: Fólk sem var að finna á undirskriftalistunum kannast ekki við að hafa skrifað undir.