Íslenska karlalandsliðið í fótbolta verður í tölvuleiknum FIFA 18, sem kemur út 29. september. Leikurinn er einn sá vinsælasti í heimi en eins og þjóðin man eftir var liðið ekki í leiknum í fyrra.
Sjá einnig: Aron Einar ánægður með að sjá Ísland í FIFA 18: „Hef sjálfur ekki spilað síðan ’98“
Það verður að segjast að strákarnir eru mislíkir sjálfum sér í leiknum. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan til að sjá hvernig þeir líta út í leiknum.