Bardagakonan Sunna Rannveig Davíðsdóttir vann Mallory Martin í atvinnuviðureign í blönduðum bardagalistum á Invicta 22 bardagakvöldinu í Kansas City í nótt.
This fight, tho. #InvictaFC22 pic.twitter.com/NIdpTnSfpX
— Invicta FC (@InvictaFights) March 26, 2017
Bardagin fór í þrjár lotur og Sunna vann eftir einróma dómakvörðun. Bardagin var afar spennandi og Sunna sendi kveðju til dóttur sinnar í hringnum eftir bardagann.
Sjá einnig: „Ég á tækifæri til að búa mér og dóttur minni gott líf og bjarta framtíð í gegnum þessa íþrótt“
Sunna gekk til liðs við Invicta Fighting Championships, sem er stórt bardagasamband í Bandaríkjunum, í apríl í fyrra. Hún varð þar með atvinnumaður í MMA, blönduðum bardagalistum, fyrst íslenskra kvenna.