Sverrir Ingi Ingason, landsliðsmaður í fótbolta, og Hrefna Dís Halldórsdóttir eignuðust sitt fyrsta barn í byrjun júlí. Hrefna Dís greindi frá þessu á Instagram í dag.
Dóttir þeirra kom í heiminn þann 1. júlí. „01.07.19 er dagurinn sem litli demanturinn okkar kom í heiminn. Fyrstu dagarnir með henni hafa verið hreint dásamlegir og erum viđ foreldrarnir yfir okkur ástfangin,“ skrifaði Hrefna á Instagram.
Sverrir og Hrefna eru búsett í Grikklandi þar sem Sverrir Ingi spilar fótbolta með gríska liðinu PAOK. Hrefna Dís er samkvæmisdansari en hún vakti meðal annars athygli í þáttunum Allir geta dansað sem voru sýndir á Stöð 2. Þau hafaverið saman í sex ár en Hrefna Dís tilkynnti ólétttuna á nýársdag.