Breski grínistinn Ricky Gervais lenti í Reykjavík í einkaþotu sinni í gær. Með í för er kærastan hans, Jane Fallon, en hann kemur fram í Hörpu í kvöld og á morgun. Uppselt er á báðar sýningarnar en miðarnir seldust upp aðeins nokkrum mínutum eftir að þeir fóru í sölu.
Ricky hefur verið duglegur að birta myndir frá Íslandi á Facebook-síðu sinni. Hann birti meðal annars þessa mynd sem sýnir hvernig hann lítur út eftir aðeins einn dag á Íslandi.
Þá hefur hann gert grín að meintu vinaleysi kærustunnar sinnar með þessum myndum
„Greinilegt er að Ricky Gervais er gríðarlega vinsæll á Íslandi því þrátt fyrir að nú sé búið að pakkfylla tvær Eldborgir þurftu ansi margir frá að hverfa miðalausir,“ sagði í tilkynningu frá Senu Live eftir að það seldist upp á sýningarnar.