Eins og kom fram hér á Nútímanum á dögunum hefur Disney ákveðið að endurgera margar þekktar barnamyndir fyrir nýja streymiveitu. Sú þekktasta er ef til vill Home Alone. Macaulay Culkin, aðalleikari myndarinnar hefur grínast með endurgerðina á samfélagsmiðlum sínum.
Culkin birti mynd á Twitter þar sem hann greindi frá því hvernig endurgerðin myndi líta út. Í kjölfarið bað hann Disney að heyra í sér.
Hey @Disney, call me!
— Macaulay Culkin (@IncredibleCulk) August 7, 2019