Auglýsing

Tæplega fimmtíu leigubílstjórar eiga von á kæru eftir helgina í miðborg Reykjavíkur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hélt úti viðamiklu eftirliti með leigubílum í miðborg Reykjavíkur um liðna helgi. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni kannaði embættið leyfi 105 leigubíla og ökumanna þeirra.

„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut aðstoðar lögreglumanna frá lögregluliðunum á Vesturlandi og Suðurlandi við þetta eftirlit um helgina“

„Í hátt í helmingi tilfelli voru gerðar athugasemdir vegna grunsemda um brot og eiga nú 48 leigubílastjórar yfir höfði sér kæru vegna þessa. Af þeim hafa enn fremur 32 leigubílstjórar verið boðaðir til að mæta með ökutæki sín í skoðun á nýjan leik.“

Víða pottur brotinn

Það er því ljóst að það er víða pottur brotinn hjá leigubílstjórum í Reykjavík ef marka má tilkynningu lögreglunnar en hún vill minna leigubílstjóra á að eftirlitið haldi áfram næstu daga.

„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut aðstoðar lögreglumanna frá lögregluliðunum á Vesturlandi og Suðurlandi við þetta eftirlit um helgina, auk þess sem fulltrúar frá Skattinum og Samgöngustofu voru með í för.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing