Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til fimmtudagsins 8. nóvember. Maðurinn, sem er fæddur árið 1959 er talinn hafa ráðist á konu í heimahúsi í Þorlákshöfn á sunnudaginn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
„Maðurinn er talinn hafa veitt konu á fimmtugsaldri stunguáverka á kvið með hnífi. Konan var flutt af vettvangi á sjúkrahús, með sjúkrabifreið, þar sem hún dvelur enn en er ekki talin í lífshættu. Báðir aðilar eru af erlendu bergi brotnir en hafa verið búsettir hér og unnið um lengri tíma,“ segir í tilkynningu.