Það sem við vitum:
- Samkvæmt nýjustu fréttum er tala látinna 84
- Fleiri en 100 eru slasaðir
- Flutningabíl var ekið inn í Mannfjölda í Nice
- Fólkið var að halda upp á Bastilludaginn
- Lögreglan skaut ökumanninn til bana
- Bíllinn var hlaðinn vopnum og handsprengjum
—
Óttast er að minnst 60 hafi látist þegar flutningabíl var ekið í hóp af fólki í borginni Nice í Frakklandi í kvöld. Þetta kemur fram á vef The Guardian. Fylgstu með fréttum af málinu hér fyrir neðan.
Fólkið var samankomið til að halda upp á Bastilludaginn sem er þjóðhátíðardagur Frakklands. Hann er haldinn 14. júlí ár hvert til að minnast árásarinnar á Bastilluna í Frönsku byltingunni 14. júlí 1789.
The Guardian greinir frá því að flutningabíllinn hafi verið hlaðinn vopnum og handsprengjum. Bílstjórinn er talinn hafa skotið á fólk áður en lögreglan skaut hann til bana.
Við færum ykkur fréttir þegar þær berast hér fyrir neðan.