250 umsóknir og ábendingar bárust fyrir aðra þáttaröð af The Voice Ísland sem hefst í Sjónvarpi Símans í október. Hvorki umsókn né ábending er þó ávísun á þátttöku þar sem framleiðendur þáttanna velja raddirnar sem taka þátt.
Mbl.is greinir frá því að þátturinn í ár verði nokkuð stærri í sniðum en í fyrra. „Það verða fleiri þættir og fleiri þátttakendur,“ segir Anna Kristín Úlfarsdóttir hjá Sagafilm í samtali við mbl.is.
Tökur hefjast í lok ágúst og 80 til 90 manns verður boðin þátttaka. Í fyrra voru þátttakendur um 60. Salka Sól Eyfeld, Unnsteinn Manúel Stefánsson, Helgi Björnsson og Svala Björgvinsdóttir snúa aftur sem þjálfarar þáttarins.