Fyrirsætan Bella Hadid og tónlistarmaðurinn The Weeknd eru aftur hætt saman ef marka má slúðurblöðin í Bandaríkjunum. E Online er á meðal miðla sem hafa greint frá sambandsslitum þeirra.
Hadid og Weeknd kynntust á tónlistarhátíðinni Coachella árið 2015 en hafa byrjað og hætt saman reglulega síðan þá. Aðdáendur þeirra eru því bjartsýnir á það að þau taki saman aftur fyrr en seinna.