Gamanþættirnir Fóstbræður sem hófu göngu sína í október árið 1997 lifa enn góðu lífi. Eftir atburði vikunnar á einn skets sérstaklega heima í umræðunni en það er kynning á Félagi íslenskra dónakarla. Það var Helgi Steinar Gunnlaugsson, grínisti sem vakti athygli á þessu á Facebook-síðu sinni í gær.
Fóstbræður. Þættirnir sem urðu að veruleika.
Posted by Helgi Steinar Gunnlaugsson on Laugardagur, 1. desember 2018
Sjá einnig: Þetta eru 17 bestu sketsar Fóstbræðra sem fagna nú 20 ára afmæli: „Kannski í næsta lífi, aumingi!“