Sjónvarpsstöðin HBO hefur staðfest að Vince Vaughn og Colin Farrell koma fram í annarri þáttaröð af True Detective. Þá er orðrómur um að Rachel McAdams verði í hlutverki lögreglustjóra í þættinum en hún ku keppa við Elisabeth Moss, úr Mad Men, um hlutverkið.
Aðdáendur geta ekki beðið en sumir eru spenntari en aðrir. Einn aðdáandi setti saman stiklu úr kvikmyndum sem Colin Farrell og Vince Vaughn hafa leikið í og kvikmyndum sem þeir léku ekki í.
Útkoman er ekki galin útgáfa af stiklu fyrir aðra þáttaröð af True Detective: