Auglýsing

Þorbjörn snýr heim í Grindavík: Gera klárt fyrir næsta verkefni

„Eftir 8 mánaða fjarveru höfum við björgunarsveitarfólk í Grindavík snúið til baka í björgunarsveitarhúsið okkar í Grindavík,“ segir í upphafi færslu björgunarsveitarinnar Þorbjörns sem nú hefur snúið til heimkynna sinna í Grindavík en í kjölfar rýmingar í nóvember síðastliðnum var ákveðið að færa aðsetur sveitarinnar til Reykjanesbæjar.

„Í fyrstu á Slökkvistöðina í nokkra daga en svo að Stapabraut 1 í Njarðvík hvar við höfum verið síðan þá með flest allt okkar dót. Það var svo nú í kvöld að 30 félagar sveitarinnar mættu til þess að flytja, þrífa og endurskipuleggja allan okkar búnað og gera klárt fyrir næstu verkefni,“ segir Facebook-síðu sveitarinnar.

Starfa í Grindavík á daginn

Þá segja forsvarsmenn sveitarinnar að hún hafi verið svo lánsöm að geta bæði haldið úti félagsstarfi og útkallsgetu frá því í nóvember þrátt fyrir að aðstæður hennar hafi breyst mjög mikið. Tekið er fram að starfið í björgunarsveit sé fyrst og fremst félagsstarf og er óhætt að segja að hópurinn, sem telur tæplega fimmtíu manns, sé ákaflega „þéttur og vel samstilltur en það hefur reynst vera lykilatriði.“

„Að því sögðu má taka fram að allir félagar sveitarinnar eru í dag fluttir úr Grindavík. Nokkrir félagar starfa þó í Grindavík á daginn og um helmingur hópsins býr svo á Suðurnesjunum. Þrátt fyrir þetta ætlum við að halda áfram að sinna útköllum og verkefnum en fyrst og fremst halda áfram okkar góða félagsstarfi í Grindavík.“

Á meðan halda þungavélar áfram vinnu við hækkun varnargarða í Svartsengi en hægt er að fylgjast með þeirri vinnu í beinni útsendingu á YouTube.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing