Anna Fríða Gísladóttir, markaðsstjóri hjá Domino’s, sagði frá því á Twitter í gær að hún væri að reyna að finna nafn á nýja pítsu sem er með ólífum. Hún var í vandræðum en það eina sem henni dytti í hug væri Ólífur Ragnar.
Fylgjendur Önnu voru gífurlega ánægðir með nafnið sem vísar í frægan skets úr Áramótaskaupinu árið 2006 sem Þorsteinn Guðmundsson skrifaði og lék í með Jóni Gnarr.
Sjá einnig: Kristófer fékk Ólívur á blaði frá sjálfum Þorsteini Guðmundssyni: „Ég sel þetta aldrei”
Er að reyna að finna nafn á pizzu sem er með ólífum.
Ólífur Ragnar er það eina sem mér dettur í hug.
?— Anna Fríða Gísladóttir (@AnnaFridaGisla) August 28, 2018
Brynja Garðarsdóttir sagði að pítsan yrði að verða að veruleika og þá sagði Anna að til þess þyrfti hún að fá grænt ljós frá Þorsteini sjálfum. Þorsteinn var ekki lengi að bregðast við kallinu.
— Þorsteinn Guðmunds (@ThorsteinnGud) August 28, 2018
Þrátt fyrir að Anna hafi fengið margar frábærar uppástungur voru flestir sammála um að nafnið Ólífur Ragnar væri það besta. Þorsteinn vildi þó hafa það Ólífur Ragnar Grímsson frekar en bara Ólífur Ragnar.
Árni Torfason var ánægður með niðurstöðuna en hann sagði að nú væri næsta skref að fá Þorstein til þess að leika í auglýsingunni. „Eða Ólaf Ragnar. Örugglega ekkert að gera hjá honum,” svaraði Henrý Þór.
Dominos setti skoðanakönnun á Twitter í kjölfarið og úrslitin koma ekki á óvart
Nú reynir á mátt Twitter.
Okkur vantar nafn á nýrri pizzu sem er með ólífum. Hvað með ?
— Domino's Pizza ÍSL (@DPISL) August 28, 2018
Hér má sjá fleiri skemmtilegar uppástungur af nöfnum á pítsuna
Ólafía og ólívur? ????
— Þröstur Sigurðsson (@trostursig) August 28, 2018
Ólívur Twist.
— Helgi Karlsson (@helgikarls) August 28, 2018
Að ólífu, amen!
— Kristján Freyr (@KrissRokk) August 28, 2018
Olivia Newton John
— Héðinn Mikk (@HedinnMikk) August 28, 2018