Þegar Kristín Þorsteinsdóttir, yfirritstjóri 365, boðaði til starfsmannafundar síðasta föstudag bjóst hún væntanlega ekki við atburðarásinni sem fór stað í kjölfarið. Nútíminn sagði frá fundinum sem var boðaður eftir að Pjetri Sigurðssyni, yfirmanni ljósmyndadeildar fyrirtækisins, var sagt upp störfum.
Starfsmenn 365 sendu frá sér yfirlýsingu í dag þar sem yfirstjórn fyrirtækisins var harðlega gagnrýnd fyrir hvernig staðið var að uppsögn Pjeturs. Hann hefur þriggja áratuga reynslu sem blaðaljósmyndari — þar af þrettán ára starfsferil hjá Fréttablaðinu og Vísi. Í yfirlýsingu starfsmanna kom fram að hann eigi að baki farsælan feril og að hann hafi reynst góður samstarfsmaður.
Pjetur hafði verið í leyfi frá störfum um margra mánaða skeið eftir að hafa kvartað undan einelti Kristínar Þorsteinsdóttur, aðalritstjóra fyrirtækisins. Fréttatíminn greindi fyrst frá eineltismálinu í maí. Þá kom fram að mannauðsstjóri 365 hafi sett í gang formlega athugun eftir að Pjetur kvartaði undan meintu einelti Kristínar. Fréttatíminn greindi síðar frá því að mannauðsstjórinn hafi látið af störfum hjá fyrirtækinu.
Yfirlýsing starfsmanna var afdráttarlaus. Þar var uppsögn Pjeturs mótmælt harðlega ásamt því að „óásættanleg vinnubrögð“ aðalritstjóra og yfirstjórnar í aðdraganda uppsagnar hans og við kynningu á henni til samstarfsmanna var hörmuð.
Við beinum því til stjórnar og stjórnenda 365 að tryggja að slík framganga, sem grefur undan faglegum grunni og trúverðugleika fréttastofunnar, geti ekki endurtekið sig.
Loks telja starfsmenn að öll meðferð málsins hafi skaðað alvarlega það traust sem þeir segja að verði að ríkja innan ritstjórnarinnar.
Starfsmenn sem Nútíminn ræddi við í dag tala um að stemningin hafi verið skrýtin á 365 í kjölfar yfirlýsingarinnar og andrúmsloftið þrúgandi. Heimildir Nútímans herma að Jón Ásgeir Jóhannesson, sem sést ekki oft á svæðinu, hafi strunsað um ganga fyrirtækisins í símanum.
Enginn af heimildarmönnum Nútímans vildi láta nafns síns getið.
Skömmu eftir hádegi bárust svo fréttir af því að Fanney Birna Jónsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, hafi sagt upp störfum. Í samtali við Kjarnann vildi hún ekkert tjá sig um málið.
Blaðamaðurinn Jón Hákon Halldórsson sendi yfirlýsinguna fyrir hönd starfsmanna Fréttablaðsins og Vísis. Yfirlýsingin var samþykkt einróma á fundi starfsmanna á mánudagskvöld. Samkvæmt heimildum Nútímans var hann kallaður á teppið hjá helstu stjórnendum 365 í dag.
Dagurinn endaði svo á því að Ingibjörg Pálmadóttir, stjórnarformaður og aðaleigandi 365, sendi starfsmönnum bréf þar sem hún sagði 365 eins og önnur fyrirtæki standa oft frammi fyrir því að þurfa að segja upp starfsmönnum. Kjarninn birtir bréfið.
„Að baki því kunna að liggja ýmsar ástæður hverju sinni. Í tilfelli Pjeturs var uppi faglegur ágreiningur milli undirmanns og yfirmanns, sem endaði með uppsögn,“ segir hún.
„Slíkt gerist því miður í öllum fyrirtækjum hvar sem er í heiminum og er alltaf erfitt. Eigendur og yfirstjórn 365 hafa aðeins eitt að markmiði að standa að vandaðri fjölmiðlum og afþreyingu og reka gott fyrirtæki.“
Ingibjörg sagði mikilvægt starfsmenn standi saman sem ein liðsheild, tali saman og geri góða fréttastofu og fyrirtækið enn betra. „Rétt er að fram komi vegna umfjöllunar um uppsögn Fanneyjar Birnu Jónsdóttur, aðstoðarritstjóra Fréttablaðsins, að hún sagði sjálf upp störfum 30. júní sl. Ástæður uppsagnarinnar voru persónulegs eðlis,“ sagði hún.
Að lokum vildi hún taka fram að 365 sé fjölskyldufyrirtæki. „Von mín er að við stöndum saman sem ein fjölskylda.“
Starfsfólk Fréttablaðsins og Vísis ætlar samkvæmt heimildum Nútímans að hittast í kvöld „og knúsast eftir daginn“, eins og heimildarmaður Nútímans orðar það.
Alls ekki slæm hugmynd.