Tökum á Eiðnum, nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks, lauk um síðustu helgi. Baltasar leikur sjálfur aðalhlutverk myndarinnar sem fjallar um hjartaskurðlækni sem þarf að taka afdrifaríkar ákvarðanir þegar dóttir hans byrjar með hættulegum glæpamanni.
Tómas Guðbjartsson skurðlæknir var Baltasar innan handar við tökur á myndinni en hlutverk hans var að gera aðgerðar- og spítalasenur sem raunverulegastar. Baltasar og Tómas eru gamlir skólafélagar úr MR og Tómas segir frá því á Facebook-síðu sinni að hann hafi fengið til liðs við þá hjúkrunarfræðinga á hjartaskurðstofu og yfirlækni og hjúkrunarfræðinga á hjartaþræðingu Landspítala.
„Þar sem Balti leikur sjálfur aðalhlutverkið fékk ég að sitja í leikstjórastólnum og öskra cut,“ segir Tómas.
Það var næstum því eins gaman og að vera alvöru hjartaskurðlæknir. Og Balti var bara hlýðinn, einnig Ingvar Sigurðsson sem leikur hitt aðalhlutverkið og kvikmyndatökumaðurinn Óttar Guðnason.
Baltasar sagði frá í Eiðnum í viðtali við Morgunblaðið á síðasta ári. Þar segir hann að upphaflega hafi Eiðurinn átt að vera sjónvarpsþættir en hann áttaði sig fljótlega á því að þarna væri spennandi efni í kvikmynd.
„Þetta er eitt besta efni og mest spennandi sem ég hef séð fyrir bíómynd og þá er ég að telja með það sem ég hef verið að lesa úti,“ sagði hann en spurður út í söguþráðinn sagði hann að myndin fjallaði um Ísland í dag þar sem fréttir af týndum stelpum berist um hverja helgi.
„Þessar unglingsstelpur eru alltaf að hverfa yfir eina og eina helgi og eru greinilega að daðra við eitthvað sem er hættulegra en þær eiga að vera að daðra við. Sagan segir af lækni, föður stúlku sem fer að reyna að ná henni út úr þessu og lendir í ótrúlegu mótlæti og erfiðleikum,“ sagði hann.
„Ég hef lýst þessu sem realistic Taken. Það er enginn ofurpabbi með byssu sem bjargar öllu heldur sýnir myndin það sem er í raun og veru að gerast í kringum okkur. Það eru misjafnir gæjar af dekkri stigum lífsins að draga stelpur á tálar sem eru ekki orðnar fullorðnar ennþá.“