Tryggvi Hansen listamaður býr í tjaldi rétt utan við Reykjavík. Tryggvi hefur búið í mörgum íbúðum í gegnum tíðina en svo áttaði hann sig á því að það er manninum eðlilegt að vera í sambúð með náttúrunni.
Tryggvi er gestur í þættinum Paradísarheimt með Jóni Ársæli sem hefur göngu sína að nýju á sunnudagskvöld. Sjáðu brot úr þættinum hér.
Tryggvi sem eyddi mörgum árum í að ferðast um heiminn segist ekki búa ekki við mjög heilsusamlegar aðstæður. „Ég hef ekki einu sinni læk,“ segir hann.