Á vefsíðunni Asos Marketplace er mikið úrval af svokölluðum, vintage fatnaði sem oft á tíðum er notaður. Á síðunni má finna peysu frá íþróttavöruframleiðandanum, Reebok merkta Knattspynrnufélagi Reykjavíkur.
Peysan er aðeins til í stærðinni XXL og er staðsett Rúmeníu. Hún kostar tæpar 4.000 krónur og seljandinn gefur sér átta daga til að koma henni hingað til lands.Hægt er að kaupa peysuna hér.
Twitter-notandinn Elín Lára vakti athygli á peysunni og af tístinu að dæma hefur hún áhuga á því að festa kaup á þessari glæsilegu peysu.
Það er einhver frá Rúmeníu að selja gamla KR peysu á asos marketplace og ég hló upphátt en langar samt líka í hana pic.twitter.com/wH6c0vE9FN
— Elín Lára Reynisdóttir (@ElinLaraRey) September 14, 2017
Til gamans má geta árið 2000 hömpuðu KR-ingar Íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu karla eftir glæsilegan 4-1 sigur á Stjörnunni. Þá léku þeir einmitt í peysum frá Reebook.