Lögregla handtók tvo karlmenn í útibúi Landsbankans í Borgartúni í dag. Mbl.is greindi fyrst frá málinu. Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við Rúv að mennirnir séu grunaðir um peningafölsun.
Fram kemur í frétt Rúv um málið að mennirnir hafi verið að setja smápeninga í mynttalningavélar, þegar þeir voru stöðvaðir. Margeir segir að verið sé að skoða hvort mennirnir hafi komið til landsins gagngert til að fremja brot en rannsókn málsins er á frumstigi.
Starfsfólk bankans óskaði eftir lögregluaðstoð en mennirnir voru handteknir á staðnum og fluttir á brott í lögreglubíl.